Árgangur 1974 frá Eyjum

velkomin/n á heimasíður árgangs 1974 frá eyjum

19.07.2009 01:03:46 / gudruni

Helstu fréttir.....

jæja árgangur....þá er nú heldur betur farið að styttast í þjóðhátíðina hina einu sönnu, svo farið að pakka niður...... Nokkrir í árgangnum eru búnir að fjölga mannkyninu í ár eða eiga von á sér núna á næstu dögum og einhverjir aðeins seinna og óskum við þeim öllum velfarnaðar í lífinu..... einnig óskum við þeim sem hafa átt afmæli í ár til hamingju og þið hin sem eftir eru að ná okkur til hammó með ammó sem er á næsta leiti.... Sálin er í Njálsbúð núna með sveitaballastemmara og eru nokkrir þar að skemmta sér frá Eyjum.... Eyjakvöld er á hinum nýja skemmtistað Kópavogsbæjar sem heitir SPOT og er snildar staður og er löngu búinn að slá Players út þrátt fyrir stuttann opnunartíma :D That´s all foks

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.03.2009 23:03:38 / gudruni

Sálin....

Sálin er á NASA í kvöld og Paparnir verða á Players næstu helgi þann 13 og 14 mars.................er ekki spurning að við hérna á höfuðborgarasvæðinu fjölmennum á ball og höldum upp á áfangann í lífinu að vera orðin og að verða 35 ára.............*ómg* mér finnst alltaf eins og ég sé bara rétt um 20 ára enþá *flissss* sé ykkur á NASA í kvöld sem mætið......ég ætla allavega að halda upp á afmælið mitt þar í kvöld þar sem ég var 35 ára í gær ;) kveðja Inga @ Sálin á NASA í kvöld :D

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.12.2008 05:05:47 / gudruni

GLLLLEEEEÐÐÐÐÐIIIIIII......

...LEG JÓL ÁRGANGUR 1974 OG AÐRIR LESENDUR SVO SEM MAKAR OKKAR OG EINNIG ÞEIR SEM FLÆKJAST HINGAÐ AF EINSKÆRRI FORVITNI :D :!: :!: :!:

» 3 hafa sagt sína skoðun

24.12.2008 05:01:20 / gudruni

Frábært......

...framlag hjá ykkur sem stóðu fyrir árgangsmótinu, vel heppnað með allar myndir og videoinu (já Jóhanna Ýr ég skal ath hvort slaufan er til enþá og Mikka mús peysan ef svo er þá mæti ég með þetta pottþétt á næsta árgangsmót, þetta er einhverstaðar heima hjá Mömmu & pabba :D ) og greinilegt að maður hefur misst af heilum helling...það er greinlegt að maður verður að koma MÖST næst.....svo það má skirfa mig núna strax á næsta árgangsmót, nú ástæðan að ég kommenta á þetta núna er sú að ég er búin að vera mjög svo upptekin síðan helgina fyrir árgangsmót og er að gera allt spikk & span hjá mér hérna fyrir jólin (rétt lokahnikkurinn) og hvað haldið þið að ég hafi fundið ?............en ekki hvað nema gamlar bekkjamyndir eða á ég að segja gamlar myndir af nokkrum velvödlum einstaklingum þar á meðal mér líka :D ætla að skella þeim hérna inn ef mér tekst það *hahahahahhahahaha* Myndirnar eru undir, þá farið þið í myndir og svo efst í - a nýtt...Gamlar myndir frá GIA (Ingu) - endilega skoðið og komentið á þessar myndir *SMILE* Gleðileg jól árgangur 1974 og mig hlakkar geggjað til að hitta ykkur á næsta árgangsmóti, mæti pottþétt þar sem ég er búin að láta vita að skráning sé hafin já eða svona næstum....

» 1 hafa sagt sína skoðun

22.09.2008 07:29:09 / johannayr

Rammamyndir - Part 2

Jæja - loksins eru allar rammamyndir tilbúnar.
Setti nýjan tengil sem heitir Rammamyndir - Part 2 og er neðstur undir myndasöfnum.

Takk Stefanía fyrir sæta kveðju ;)
Verði ykkur bara að góðu!

» 8 hafa sagt sína skoðun

18.09.2008 20:05:09 / johannayr

Rammamyndir og vídeó

Jæja bjútífúl pípol
Rammamyndirnar loks komnar inn - tók soldið langan tíma að snyrta þær.
Það vantar enn örfáar myndir (tæknin að stríða okkur, eða réttara sagt, póstþjónar frá Íslandi til Danmerkur fúlsa við svo stórum sendingum en við erum að ná að sparka þá til hlýðni).

Rammamyndirnar sem eru hér á síðunni eru pakkaðar fyrir vefinn en ég geymi myndirnar í upprunalegum gæðum svo að ef ykkur langar að fá senda mynd til útprentunar þá sendið mér bara línu en athugið að reyna að hafa eins nákvæma lýsingu á myndinni og hægt er (ógrynni mynda sem ég er með á mínum enda).
Netfangið mitt er: johanna@yr.is

Ég sendi ÖLLUM í fyrradag póst með tengil á myndbandið, (Tóti, kíkja á póstinn sinn haha) en ég ætla að setja inn fastan tengil hér á síðuna.

En þið getið kíkt á það hér:
www.yr.is/argangsvideo.wmv

Þær rammamyndir sem enn er verið að laga til eru t.d. af "hinum" bekknum í Barnaskóla (Heiða og co) og strákunum úr "mínum" bekk - þið verðið bara að vera dugleg að kíkja næstu daga!

P.S. Rammamyndirnar eru neðsti tengillinn undir Myndasöfn og tengill á vídeóið er komið hérna næstum efst til vinstri.
Versogú!

» 5 hafa sagt sína skoðun

14.09.2008 16:55:41 / Sigthora

Jæja... óver end át!

Þá er það bara búið!

Byrjum að telja aftur niður fyrir næsta árgangsmót... rétt tæp fimm ár til stefnu!!!

Takk fyrir samveruna... finnst ég ríkari í dag en ég var fyrir helgi. Gaman að hitta ykkur öll, sama hvort 5, 10 eða 25 ár síðan síðast, já eða bara tveir dagar.

Takk, takk enn og aftur!

» 21 hafa sagt sína skoðun

12.09.2008 08:31:47 / Sigthora

Fyrirpartý

Jæja, þá er það komið á hreint.

Hamarsskólapartýið verður hjá Önnu Lilju á Illugagötu 11.
Barnaskólapartýið verður hjá Heiðu á Hrauntúni 23.

Mæting um 17,30

» 1 hafa sagt sína skoðun

05.09.2008 10:46:01 / johannayr

Matseðill og dagskrá - hverjir eru skráðir til leiks?

Það gleymdist að kynna til leiks nýjan matseðil (f. laugardagskvöldið) og vildum svo setja inn dagskránna til upprifjunar. 

Föstudagur 12. september

17.30  - Skóla/bekkjarpartý - mæta með góða skapið, drykki, 250 kr. fyrir rútu, enn meira söngvatn og húmorinn að springa utan af fólki
Barnaskóli - Heiða Marinós Hrauntúni 23
Hamarskóli - auglýst nánar síðar
19:15  Rútur sækja glæsilega glamúrfólkið
19. 30 Húsið opnar – Salur Eyjabústaða
20. 00 Hátíðin hefst

Matseðill
Nautacarpaccio á ruccolabeði með mangókrap og sítrusolíu
Pönnusteiktur skötuselur á steinseljurótarmús, borið fram með hvítvínsgljáa
Humar í limedjús vafin í japanskt deig með chilly dressingu
Langtímaeldaðar svínalundir með sinneps-hunangs hjúpog róbert sósu
Ostfylltar kjúklingabringur með paprikusósuog villihrísgrjónum
Pönnusteiktar folaldalundir með möndlukartöfluköku, púrtvínssósu, og pönnusteiktu grænmeti

Skemmtiatriði

Dansinn dunar með öllum bestu slögurum 80‘s og 90‘s

Laugardagur 13. september

16.00  - Mæting í Kaffi Kró
Óvissuferð hefst – klæða sig eftir veðri – en hafa kannski eins og einn hlut sem minnir á 80‘s ?  Eitthvað neonlitað, grifflur, tjull – þarf ekki að vera erfitt. Þeir sem hafa keppnisskapið í lagi mæta auðvitað dressaðir eins og Duran Duran eða Bananarama – flottasta dressið fær verðlaun!

Matseðill
Kraumandi kjúklingasúpa og nýbakað brauð a la Einar Björn borin fram með glettni, gleði og glæsileik

Skemmtiatriði – öll skemmtiatriði vel þegin!

Djamm, dans og djús fram eftir kveldi (fram á morgunn ef við stöndum undir nafni).

-------------------------

Eftirtaldir hafa svo skráð sig í húllumhæið heilaga:

Anna Lilja
Arna Bjartmars
Auður Ásgeirsd.
Bóbó Lýðs
Brynja Jónsd.
Dóra Björk
Elfa Ágústa
Grímur Jóns
Gunni Ella Pé
Helgi Karl
Himmi
Hrund Gíslad.
Maggi Sig.                    
Sigþóra              
Tóti
Þurý                            

Albert Heimisson
Dögg Lára
Guðjón
Gummi
Gústi Gústa
Hafliði
Halldór Jón
Heiða
Íris Sæm
Jóhanna Ýr 
Kolla
Kristján
Pálmi Freyr
Pálmi Jóh.
Sif
Sigrún Árnad.
Stefán
Súsanna
Svenni
Tryggvi Gunn
Valur

Annað kvöldið:

Dóra Hanna (Föstudagskvöld)
Dóra Guðrún (Föstudagskvöld)
Stefanía (föstudagskvöld)
Rútur (laugardagskvöld)
Hlynur (laugardagskvöld)
Hjalti (Laugardagskvöld)
Boggi (sagðist koma pottþétt laugardagskvöld, ætlar að reyna einsog hann getur föstudagskvöld)
Unnþór (meldaði sig á laugardagskvöld - ætlaði að reyna föstudagskvöld)

Nú er bara að muna að
greiða fyrir herlegheitin -
ákveða múnderinguna -
finna til klink og káta skapið -
hafa til nóg af söngvatni (hér í DK eru seldar einhvers konar kaktustöflur sem þarf að taka 6 tímum fyrir húllum hæ og koma í veg fyrir að heilt iðnaðarmannastóð byggi háhýsi í hausnum á manni daginn eftir - hef prófað þær og þær virka - kannski verður hlegið að þér út í apóteki ef þú spyrð um kaktustöflur við timburmönnum á Íslandi, veit ekki, en ég mæli með að þú tékkir allavega á því 8))

Bara vika í árgangsmót - vúhú!


» 6 hafa sagt sína skoðun

04.09.2008 10:03:32 / johannayr

Óskalagalistinn

Það er bara allt að verða vitlaust í traffík á síðunni?
Sé að það koma þó nokkrir í heimsókn en enginn virðist finna hjá sér þörf fyrir að tjá sig hér (annað en sumir, t.d. MOI! ;)).

Skráningu fer að ljúka - spennan magnast (sumir hættir að geta sofið fyrir tilhlökkun t.d.) og allt er að smella saman í undirbúningnum.

Fyrir diskótekið þarf að reyna að gera öllum til geðs (þó vissulega sé það kannski aldrei alveg gerlegt) og er lagalisti DAUÐANS í bígerð. En vegna þess að öll umferð að græjunum verður pínu takmörkuð þegar að kvöldinu kemur (glasahellingar hjá ekki-edrú einstaklingum hjá rándýrum ferðavélum t.d. ekki vænlegar til árangurs, auk þess sem engin nettenging verður í salnum og því ekki hægt að redda frábærum slagara þegar í hús er komið!) verðið þið að koma á framfæri ykkar uppáhaldslögum.


Til að ýta við minninu, eru nokkur dæmi um lög sem hafa furðuleg áhrif á fætur mannkyns:
Footlose, Útihátið, Walking on Sunshine, Wild Boys, Wake  me up before you gogo, Rock the Casbah, Sólstrandargæi, What a feeling, Luftgitar, C'mon feel the noise, I won't let the sun go down on me, Eye of the Tiger, Halló ég elska þig, Living on a Prayer, Hvar er draumurinn, Lust for life, Like a Virgin, Gaggó Vest.... 

Hvaða lag er garinterað til að koma þér út á dansgólfið?
Koddu með'ða!


» 6 hafa sagt sína skoðun

02.09.2008 09:47:48 / johannayr

Afmælisbörn!

Reyndi að setja kveðju inn alla helgina til hennar Jóu en það var stanslaus bilun í kerfinu hjá blogcentral - ætla að reyna að setja kveðjuna inn núna og vona það besta!

Innilega til hamingju með daginn Jóa! Minnum svo á að við viljum endilega fá þig á árgangsmótið!
Já og Dóra Björk, fréttaritarar klikkuðu víst, síðbúnar afmæliskveðjur til þín 8)

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.08.2008 14:46:32 / johannayr

Fréttablaðið Gaggó Vestmó '74

Jæja
 
Nú styttist óðum í árgangsmótið og spennan magnast dag frá degi.
 
Fréttaritarar árgangsins fóru á stúfana og urðu margs vísari:
 
- Heyrst hefur að gamlir kennarar árgangs 1974, sem samband var haft við vegna árgangsmótsins og voru beðnir um að rifja upp sögur af árganginum, hafi í kjölfarið stofnað leynilega stuðningsgrúppu og leiti þeir þar hjálpar hvor hjá öðrum. Á fundunum hafa þeir skapað sérstaka frasa eins og: "Helga Karls-syndromið" - "Heiðu-límskór" - "Össa-brunavörn" - "Jóu-tæklun" og "Kollu-pungspark" sem eiga víst öll að vísa til ákveðinnar óþekktar sem þeir upplifðu frá árgangnum. Þegar fréttaritarar náðu tali af þessum nemendum og báðu þá um álit á þessum nafngiftum var furðulega einróma svar: "No comment." Fréttaritarar hafa ekki gefist upp við að reyna að komast að sannleikanum í þessu máli og munu láta vita um leið og nýjar fréttir berast.
 
- Orðrómurinn á götunni er að Pálmi Freyr ætli að vera með gjörning á laugardeginum þar sem hann er í persónulegu sambandi við veðurguðina. Hann neitaði að lýsa því nánar fyrir fréttaritara og sagði að sínar leiðir væru órannsakanlegar - fólk yrði bara að mæta til að sjá krafta hans.
 
- Mikill spenningur er hjá árganginum yfir endurfundum Gríms og Sigþóru. Veðbankar eru ekki á sama máli um útkomuna en þó virðast margir spá því að Geir og Sif eigi eftir að bjarga vandræðalegum þögnum.
 
- Því miður varð að aflýsa Vogue-dansi Bjössa, Halldóru Magg, Helgu Stefaníu og Hjálmfríðar á föstudagskvöldinu. Halldóra, sem býr nú í Vogum (ekki Vogi notabene), er að jafna sig á sinaskeiðabólgu eftir mikla töfluskrift og Helga Stefanía fékk flís í augað eftir að hafa brotið enn eitt kennaraprikið. Við óskum þeim að sjálfsögðu góðs bata og vonum að þau verði ekki orðin of gömul eftir fimm ár til að flytja meistaraverkið.
 
- Vegna dræmrar þátttöku verður ekki farið í keppni um það hvor bekkurinn verði "fyrstur úr leikfimi" - þó verður fólk að vara sig á að skilja ekki skónna sína eftir án eftirlits - þeir gætu verið bundnir saman (ja, eða límdir uppá vegg?). Þó verður haft sérstakt auga með Heiðu Marinós þessa helgi því hún er útsmognari en andskotinn, svo Nefndin neitar að taka fulla ábyrgð á því.
 
- Már Jónsson kennari hefur enn ekki staðfest hvort hann komi á árgangsmótið að flytja hið víðfræga rapp-atriði sitt "Jórturgúmmi og kaskeyti" við lag KISS "Lick it up." Fréttaritarar áttu erfitt með að greina svar hans þegar spurður var út í útskýringar en heyrðist hann muldra "búningavandræði."
 
- Ný fréttatilkynning var að berast - Sprangan verður lokuð þessa helgi. Þegar fréttist hvaða árgangur væri að fara að hittast var undirskriftalisti settur af stað á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja þar sem starfsmenn fóru þess á leit við bæjaryfirvöld. Sigþóra neitaði að tjá sig um málið.
 
Fréttablaðið Gaggó Vestmó '74 - alltaf fyrst með fréttirnar!

» 3 hafa sagt sína skoðun

27.08.2008 13:02:32 / johannayr

Eldvatnið góða - og rútuspurning (ekki Rútur-spurning)

Það hefur alveg gleymst að minnast á aðra snilld við undirbúninginn hjá nefndinni í Eyjum - fyrst að við verðum í Eyjabústaða-salnum má hver koma með sitt eldvatn - ekkert okur á barnum !!!
Við erum líka með árunum að verða svo ferlega sérvitur á drykki að það þyrfti að hafa 3 mismunandi tegundir af hverri sort (sumir drekka t.d. bara gin - en þá bara Bombay, eða alls ekki Bombay!) - svo það yrði líklega ógerningur að hafa bar sem myndi geta gert öllum til hæfis.

Svo vildum við skella fram hugmynd - fá rútu til að sækja okkur í fyrirpartýin - það kostar einungis 250 kr. á mann svo það er ódýrara en að taka taxa! (Auk þess eru svo fáir leigubílar á eyjunni að það þyrfti nokkuð margar ferðir hahaha.)

Hvernig er stemmningin fyrir því?

» 4 hafa sagt sína skoðun

24.08.2008 08:12:04 / johannayr

Verðið lækkar!!! Já, og hverjir eru búnir að skrá sig?

Sælar elskurnar!

Undirbúningsnefndin í Eyjum hefur verið sveitt að störfum við að finna bestu boðin (án þess að skerða gæðin auðvitað) og hefur náð verðinu niður í 6.500 kr pr. mann!!!
Húrra fyrir undirbúningsnefndinni!
Núna eru enn færri afsakanir fyrir að koma ekki, svo núna er maður eins og rispuð plata: Koma svo og mæta í húllumhæið!
 
Minnum svo á að borga staðfestingargjaldið (já eða klára að borga fyrir sig):
Reikningsnúmer: 0582-14-601974
Kt. 230974-5789
--------------------------------------------------
Guðjón benti svo á að setja inn á síðuna hverjir væru búnir að skrá sig, það gæti ýtt við þessum óákveðnu :)

Ég set BARA inn þá sem hafa sent formlegan póst um skráningu, ekki þá sem hafa hitt einhvern úr árgangnum og sagst ætla koma eða skrifað á síðuna að þeir ætli "pottþétt" að koma (mjööög margir þannig) - svo að - þú veist hver þú ert - SKRÁÐU ÞIG!!!

Anna Lilja
Arna Bjartmars
Auður Ásgeirsd.
Bóbó Lýðs
Brynja Jónsd.
Dóra Björk
Elfa Ágústa
Grímur Jóns
Gunni Ella Pé
Helgi Karl
Himmi
Hrund Gíslad.
Maggi Sig.                    
Sigþóra              
Tóti
Þurý                            

Albert Heimisson
Dögg Lára
Guðjón
Gummi
Gústi Gústa
Hafliði
Halldór Jón
Heiða
Íris Sæm
Jóhanna Ýr 
Kolla
Kristján
Pálmi Freyr
Pálmi Jóh.
Sif
Stefán
Súsanna 
Svenni
Tryggvi Gunn
Valur

Annað kvöldið:

Dóra Hanna (Föstudagskvöld)
Stefanía (allavega föstudagskvöld)
Hjalti (Laugardagskvöld)
Boggi (sagðist koma pottþétt laugardagskvöld, ætlar að reyna einsog hann getur föstudagskvöld)
Unnþór (meldaði sig á laugardagskvöld - ætlaði að reyna föstudagskvöld)

Eins og sést er Hamarsskóli með ívið fleiri skráningar - koma svo Barnaskóli!!!

Og syngja svo allir með:

Ég var að moka steypu
alveg helvítis helling steypu
þá kom verkstjór inn til mín
og sagði, hei Kalli það er komið kaffi
alveg helvítis hellings kaffi 
ný brennt og malað
beint frá Brasilíu,
 
þá sagði ég: "Kalli, ég heiti ekki Kalli"
 
ég heiti hö----……. og ég er 24 24 over and out
Sólstrand argæi!
Sólstrand argæi,
það er í góðu lagi að vera Sólstrandargæi. 8)


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.08.2008 19:22:37 / Sigthora

Helstu upplýsingar

Fannst vanta hér inn upplýsingablaðið og set því inn helstu upplýsingar!

Árgangsmótið er haldið í Eyjum 12. - 14. september 2008.
Dagskráin hefst á föstudeginum kl. 17,30 og kl. 16.00 á laugardeginum.

Verð verður í kringum 8.-9.000 krónur (fer eftir þátttöku).
Skráning fer fram á netfangið johanna@yr.is
Staðfestingargjaldið, 3.000 krónur, er lagt inn á 0582-14-601974 kt. 230974-5789

kV. Sigþóra



» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6